Persónuvernd og gögn
Götusögur virða friðhelgi gesta. Hér útskýrum við hvaða upplýsingar verða til þegar þú notar vefinn eða sendir okkur efni og hvernig þær eru notaðar. Uppfært 30. október 2026.
Hver ber ábyrgð á vefnum?
Ábyrgðaraðili persónuupplýsinga á gotusogur.is er Kjartan Örn Sigurðsson, fyrir hönd Straumrótar ehf., sem er í stofnun. Þegar félagið hefur verið skráð tekur það við ábyrgðinni og þessi texti verður uppfærður.
Hafðu samband vegna persónuverndar á [email protected].
Tæknilegar upplýsingar
Þegar þú opnar vefinn berast hýsingaraðila og öryggisþjónustu tæknilegar upplýsingar sem þarf til að birta og verja síðuna, svo sem IP-tala, tími beiðni og upplýsingar um vafra. Cloudflare sér um hýsingu og öryggi vefsins. Þessar upplýsingar eru notaðar vegna reksturs, öryggis og bilanagreiningar og eru varðveittar samkvæmt skilmálum og stillingum Cloudflare.
Vefurinn notar engin greiningartól og engin auglýsingakerfi. Letur vefsins er hýst á vefnum sjálfum og ekkert er sótt frá Google Fonts.
Vafrakökur og stillingar í vafra
Vefurinn notar engar vafrakökur. Tungumálaval og litlar stillingar, til dæmis hvort þú hefur smellt á „Ég man þetta líka“, vistast í staðbundinni geymslu (local storage) í þínum eigin vafra og eru ekki sendar til okkar. Við notum engar greiningar- eða auglýsingakökur.
Staðsetning
Ef þú velur „Nota mína staðsetningu“ biður vafrinn þinn um leyfi áður en staðsetning er notuð. Staðsetningin er send til OpenStreetMap (Nominatim) til að finna næsta heimilisfang. Götusögur vista ekki staðsetninguna.
Efni sem þú sendir okkur
Þegar þú sendir okkur sögu, ábendingu eða annað efni vinnum við með þær upplýsingar sem fylgja, svo sem texta og nafn eða netfang ef þú velur að láta það fylgja. Nafn er valfrjálst. Við biðjum ekki um kennitölu.
Innsendingar fara sem tölvupóstur á [email protected]. Þú sérð textann áður en hann er sendur og sendir hann sjálf(ur). Við notum efnið til að fara yfir ábendinguna, hafa samband við þig ef þarf og, ef þú samþykkir það sérstaklega, birta efnið á vefnum. Ekkert er birt fyrr en við höfum lesið það og þú hefur samþykkt birtingu.
Innsendingar eru geymdar á meðan yfirferð stendur og eftir það aðeins ef efnið er birt með samþykki þínu eða varðveisla er nauðsynleg. Tölvupóstur sem ekki leiðir til birtingar er eytt innan 12 mánaða.
Núlifandi fólk og núverandi íbúar
Götusögur birta ekki upplýsingar um núlifandi fólk eða núverandi íbúa nema skriflegt samþykki liggi fyrir. Nöfn eigenda og umsækjenda úr eldri teikningum, brunavirðingum og fundargerðum eru ekki birt.
Réttindi þín
Þú getur óskað eftir aðgangi að persónuupplýsingum um þig, leiðréttingu þeirra eða eyðingu, eða lagt fram kvörtun hjá Persónuvernd (personuvernd.is). Réttindin geta verið háð skilyrðum og undantekningum samkvæmt lögum.
Sendu beiðni á [email protected].