Fundargerðir byggingarnefndar · Staðfest með heimild
Húsið í fundargerðum 1947–1951
26.6.1947 · Steypa girðingu um lóðina · Samþ.(skráð: „37 (áður nr. 53)“) Eldra númer 53 → nýtt 37: staðfestir endurnúmerun Laugateigs (oddatölur −16)
Fundargerðir byggingarnefndar Reykjavíkur 1947–1951 (Þjóðskjalasafn Íslands, afrit send Götusögum í október 2026). Nöfn umsækjenda eru ekki birt.
03
Fólk og minningar
Íbúar, starfsemi og frásagnir
Frá íbúum · 1 óstaðfest
Úr dagblöðum 1944–1955
Laugateigur 37 á Tímarit.is
Laugabúðin
Staðfest með heimild
Matvöruverslun · mars 1955 – um 1970
„Laugabúðin er flutt á Laugateig 37“ (auglýsing í mars 1955). Sími 34032. Elín Guðmundsdóttir var kaupmaður í Laugabúðinni samkvæmt heimildarmanni Götusagna; óstaðfest er hvort hún rak búðina eftir flutninginn á nr. 37 eða allan tímann. Gústaf A. Ágústsson, sem bjó á nr. 37, seldi húsið ásamt fleirum í maí 1964 og búðin starfaði áfram eftir það. Auglýsti í skólablaði Laugarnesskóla og seldi minningarkort. Brotist var inn í búðina og stolið peningum, tóbaki og sælgæti, sagt frá í júní 1962. Í maí 1970 var „verzlunarhúsnæði á Laugateigi 37“ auglýst til leigu, svo verslunin hefur þá líklega hætt.
Leit að „Laugateig 37“ og „Laugateigi 37“ á árunum 1944–1955 skilaði 26 niðurstöðum: auglýsingar, tilkynningar og listar. Nöfn úr þeim eru ekki birt hér fyrr en búið er að staðfesta hver bjó í húsinu og hvort viðkomandi sé á lífi.
SkráningarreglaAf hverri teikningu er lesið: hönnuður, trésmíðameistari, múrarameistari, rafvirkjameistari og byggingarefni. Ólæsileg nöfn eru sýnd sem klippa úr teikningunni.
GS-LTG-37-S08Aðalteikning · M 1:100 og 1:500
1945 Hús nr. 53 við Laugateig, síðar 37
Samþykkt á fundi byggingarnefndar 13. ág. 1945
Arkitekt / hönnuður
Bárður ÍsleifssonStaðfest með heimild
Undirritað „Reykjavík í ágúst 45“.
Byggingarstjóri / trésmíðameistari
Lesið sem Guðmundur JóhannssonLíklegt – þarfnast staðfestingar
Múrarameistari
Ólæsilegt í þessari upplausnÞarfnast staðfestingar
Rafvirkjameistari
Kemur ekki fram á teikningunniÞarf frekari rannsóknar
Byggingarefni
Ekki skráðÞarf frekari rannsóknar
Klippa úr efri hluta teikningar: titill, meistarar, samrit og samþykkt · þarfnast staðfestingarKlippa úr neðra horni: undirskrift hönnuðar og dagsetning
Lesið af teikningunni
Lóð 572 m², hús 126,48 m², bílskúr 27,4 m².
Á afstöðumynd er „Nr 53“ strikað yfir og 37 skrifað.
21.4.1947 · brunabótanúmer 3302 · metið á 264.600 kr.
1 hæð, geiraris og kjallari, úr steinsteypu. Múrhúðað utan með marmarasalla og tinnu. Olíukyntur ketill. Steinsteyptur bílskúr á lóðinni.
Fyrsta mat sýnir að húsið var tilbúið til virðingar á þessum degi. Nafn eiganda er ekki birt.
Staðfest með heimildBrunavirðingabók Reykjavíkur 9.6.1945–28.8.1947, aðfnr. 4339 (Borgarskjalasafn, nú Þjóðskjalasafn)
Húsaskrá Reykjavíkur
Byggingarár skráð: 1937. Ártalið stenst ekki: fyrsta teikning hússins er frá 1945 og fyrsta brunavirðing frá 21. apríl 1947. Líklega innsláttarvilla fyrir 1947. Brunavirðingarnúmer er ekki skráð.