Stjörnubúðin
- Hús
- Laugateigur 24
- Tímabil
- um 1949 – 1951
Í auglýsingu frá 1951 segir að Verzlunin Laugateigur sé rekin þar sem Stjörnubúðin var áður.
Merki við hverja fullyrðingu sýnir hversu traust hún er.
Gata er ekki aðeins röð íbúðarhúsa. Hún er líka vinnustaður, þjónustukjarni og lifandi samfélag. Hér er skráð öll starfsemi í húsum við götuna, fyrr og nú.
Fyrstu staðfestu færslurnar koma úr dagblöðum á Tímarit.is og teikningum. Áttu sögu af verslun, hárgreiðslustofu eða verkstæði? Hver færsla hefur hnapp til að senda inn sögu.
Í auglýsingu frá 1951 segir að Verzlunin Laugateigur sé rekin þar sem Stjörnubúðin var áður.
Tilkynning 1951: nýir eigendur reka verslun á Laugateig 24, áður Stjörnubúðin. Sími 81666. Seldi líka minningarspjöld og miða. Árin 1951–1953 er verslunin stundum sögð á Laugateig 41. Það gæti verið prentvilla eða útibú.
Opnaði föstudaginn 9. maí 1947 með nýlenduvörur og kjöt. Kaupmaður: Elín Guðmundsdóttir. Heimildarmaður Götusagna staðfestir að hún var kaupmaður í Laugabúðinni, og í desember 1953 kemur hún fram „f.h. Laugabúðarinnar“ í Kaupsýslutíðindum. Óstaðfest er hvort hún rak búðina allan tímann. Reynt var að brjótast inn í verslunina í október 1951. Í mars 1955 flutti verslunin á Laugateig 37.
„Laugabúðin er flutt á Laugateig 37“ (auglýsing í mars 1955). Sími 34032. Elín Guðmundsdóttir var kaupmaður í Laugabúðinni samkvæmt heimildarmanni Götusagna; óstaðfest er hvort hún rak búðina eftir flutninginn á nr. 37 eða allan tímann. Gústaf A. Ágústsson, sem bjó á nr. 37, seldi húsið ásamt fleirum í maí 1964 og búðin starfaði áfram eftir það. Auglýsti í skólablaði Laugarnesskóla og seldi minningarkort. Brotist var inn í búðina og stolið peningum, tóbaki og sælgæti, sagt frá í júní 1962. Í maí 1970 var „verzlunarhúsnæði á Laugateigi 37“ auglýst til leigu, svo verslunin hefur þá líklega hætt.
Munnleg frásögn: Í búðinni var meðal annars seld steinolía, og fólk úr Múlunum kom þangað til að kaupa steinolíu til húshitunar, því þar var ekki rafmagn.
Staðfesta eða bæta viðSmáauglýsing nefnir „mjólkurbúðina á Laugateig 24“ í maí 1952. Hve lengi hún starfaði er óþekkt.
Mjólkurbúð í götunni lokaði 31. janúar 1977, þegar mjólkurbúðirnar voru lagðar niður. Ekki er víst að það sé sama búðin og á nr. 24.
Auglýst sem Sunnubúðin, Laugateig 24, sími 34666, í nóvember 1963. Hvað var selt og hve lengi hún starfaði er óþekkt.
Píanókennsla var auglýst á heimili á Laugateig 28 árin 1962–1964. Kennarinn er ekki nafngreindur hér.
Auglýsti eftir starfsfólki og tók við þvotti.
Tók til starfa í maí 1955 „í glæsilegum húsakynnum á Laugateig 60“, í sama húsi og Laugabúðin hafði verið. Hárgreiðslumeistari: frú Hlíf Þórarinsdóttir. Sími 4004, síðar 5053. Auglýsing í nóvember 1955 nefnir „Laugateig 66“, sem er líklega prentvilla fyrir 60.
Tók til starfa í október 1956 á Laugateig 60, „ný komin heim frá Ameríku með ýmsar nýjungar“. Í apríl 1959 var húsnæði fyrir hárgreiðslustofu á Laugateig 60 auglýst til leigu.
Veldu húsnúmer til að sjá skráða starfsemi.
Skýringarmynd með núverandi húsnúmerum. Götunni hefur verið endurraðað og eldri númer eru skráð á síðu hvers húss. Lóðaskipan á eftir að staðfesta úr Borgarvefsjá.
Sendu inn nafn fyrirtækis, húsnúmer, tímabil, ljósmynd, auglýsingu eða minningu. Líka heimarekstur, stofur og félagsstarf.
Við söfnum heimildum, ljósmyndum og minningum til að varðveita sögu húsanna og fólksins við götuna. Stuðningur þinn hjálpar okkur að gera efnið opið og aðgengilegt.
Gata er ekki aðeins röð íbúðarhúsa. Hún er líka vinnustaður, þjónustukjarni og lifandi samfélag. Hér er skráð öll starfsemi í húsum við götuna, fyrr og nú.
Fyrstu staðfestu færslurnar koma úr dagblöðum á Tímarit.is og teikningum. Áttu sögu af verslun, hárgreiðslustofu eða verkstæði? Hver færsla hefur hnapp til að senda inn sögu.
Veldu húsnúmer til að sjá skráða starfsemi.
Skýringarmynd með núverandi húsnúmerum. Götunni hefur verið endurraðað og eldri númer eru skráð á síðu hvers húss. Lóðaskipan á eftir að staðfesta úr Borgarvefsjá.
Sendu inn nafn fyrirtækis, húsnúmer, tímabil, ljósmynd, auglýsingu eða minningu. Líka heimarekstur, stofur og félagsstarf.
Síminn les stoppin upphátt með talgervli tækisins. Raddir og viðtöl við heimafólk koma síðar.
Gengið eftir Laugateig frá lægri númerum til hærri. Á leiðinni eru heimili þekktra íbúa, hús byggð eftir sömu teikningu, verslanir sem komu og fóru, bílskúr sem varð kosningaskrifstofa, sprenging á gamlárskvöld og teikningar sem sýna að húsin skiptu um númer. Lengd og göngutími hafa ekki verið mæld.
Stoppin eru auðkennd. Smelltu á hús til að opna síðu þess.
Opnar leiðina í Google Maps með stoppunum í röð. Kortið byrjar á staðsetningunni þinni og sýnir hvað er í kringum þig. Aðeins fyrstu 10 stopp rúmast í einni slóð.
Opna í Google MapsGrænu húsin eru stopp á göngunni, í númeraröð. Smelltu á hús til að stökkva á stoppið. Grá hús eru í skrám okkar en ekki stopp á þessari göngu enn. Skýringarmynd, ekki mæld lóðaskipan; öll hús götunnar eru ekki komin enn.
Gísli Halldórsson og Sigvaldi Thordarson teiknuðu Laugateig 7, 13, 15, 17 og 21 árið 1946 (teikningar 338–341/46 og 613/46). Þann 9. mars 1948 voru þessi fimm hús og sjö hús við Hofteig metin á sama fundi, hvert á 306.900 kr. Við húsin við Hofteig stendur „sama og Hofteigur 4“. Berðu húsin saman þegar þú gengur framhjá: liti, glugga, þök, svalir, viðbyggingar og viðhald.
Adda Bára Sigfúsdóttir (1926–2022) var skráð til heimilis á Laugateig 11 á framboðslista 1959. Hún var veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands og borgarfulltrúi í Reykjavík. Faðir hennar, Sigfús Sigurhjartarson, var skráður á nr. 24 árið 1950.
Bílskúrinn var kosningaskrifstofa fyrir Laugarnesskólahverfi í alþingiskosningunum 1967. Nr. 12 og 16 voru teiknuð samtímis af Gísla Halldórssyni 1948 og metin sama dag á sama verði. Berðu húsin saman þegar þú gengur framhjá: liti, glugga, þök, svalir, viðbyggingar og viðhald.
Fangahjálpin Vernd keypti húsið fyrir áfangaheimili. Íbúar mótmæltu á fjölmennum fundi og 450 skrifuðu undir. Heimilið tók samt til starfa. Sagan er sögð á götuhæð, án nafna einkaaðila.
Teikning frá 1946 sýnir „BÚГ á 1. hæð. Í blöðunum eru nefndar Stjörnubúðin (1949), Verzlunin Laugateigur (frá 1951), mjólkurbúð (1952) og Sunnubúðin (1963). Spennistöðin Laugateigur 24A var samþykkt 1978 og hét áður Sigtún 39. Sigfús Sigurhjartarson (1902–1952) alþingismaður og bæjarfulltrúi var skráður á nr. 24 á framboðslista í janúar 1950.
Á heimili á nr. 28 var auglýst píanókennsla árin 1962–1964. Á gamlárskvöld 1971, um kl. 23.30, sprakk öflug sprengja á götunni móts við húsið. Um 40 rúður brotnuðu í átta húsum og hola kom í malbikið. Enginn fannst sem bar ábyrgð.
Ein aðalteikning, 757/45, eftir Hafliða Jóhannsson nær yfir bæði húsin. Berðu húsin saman þegar þú gengur framhjá: liti, glugga, þök, svalir, viðbyggingar og viðhald.
Þvottahúsið Laugateig 31 auglýsti 1948–1951. Í deiliskipulagi Teigahverfis frá 2002 eru nr. 27 og 31 nefnd í kaflanum um verndun 20. aldar bygginga.
„Laugabúðin er flutt á Laugateig 37“ (1955). Búðin auglýsti meðal annars í skólablaði Laugarnesskóla. Árið 1970 var verslunarhúsnæðið auglýst til leigu, svo búðin hefur líklega hætt þá.
Af fyrstu brunavirðingum allra 48 húsanna er sú elsta frá 25. febrúar 1947, á þessu húsi. Á teikningum 1945–1946 heitir það nr. 58.
Bárður Ísleifsson teiknaði „Hús við Laugateig nr. 62 og 64“, síðar 46 og 48, á eina teikningu sem var samþykkt 27. september 1945. Húsin voru metin sama dag, 10. desember 1947, hvort á 190.500 kr. Berðu húsin saman þegar þú gengur framhjá: liti, glugga, þök, svalir, viðbyggingar og viðhald.
Þórir Baldvinsson teiknaði húsið og teikningin var samþykkt 13. sept. 1945, þegar það hét nr. 66. Kringlóttu gluggarnir sitt hvorum megin við útidyrnar á norðurhlið eru á aðalteikningunni. Hvenær húsið var fullbyggt er óvíst, því heimildum ber ekki saman.
Eggert Magnússon, vörubifreiðastjóri, vélstjóri og listmálari, bjó á Laugateig 52. Listasafn Reykjavíkur sýndi 41 olíumálverk eftir hann á Kjarvalsstöðum 1987. Hann lést árið 2010.
Afstöðumynd á teikningu nr. 58 frá 1945 sýnir nágrannahúsið með tveimur númerum, 50 og 66, hlið við hlið. Á öllum teikningum með yfirstrikuðu númeri er gamla númerið 16 hærra en það nýja. Hvers vegna götunni var endurraðað er enn óstaðfest.
Laugabúðin opnaði hér 9. maí 1947 með nýlenduvörur og kjöt og flutti á nr. 37 í mars 1955. Eftir það voru hárgreiðslustofur í húsnæðinu, Permína og síðar Raffó, til um 1959.
Áttu minningu, mynd eða heimild um hús við götuna sem ætti að vera hluti af göngunni?
Leggja til stopp