Sama teikningLíklega sama teikning
Tólf hús, ein gerð
Gísli Halldórsson og Sigvaldi Thordarson teiknuðu Laugateig 7, 13, 15, 17 og 21 árið 1946 (teikningar 338–341/46 og 613/46). Þann 9. mars 1948 voru þessi fimm hús og sjö hús við Hofteig metin á sama fundi, hvert á 306.900 kr. Við húsin við Hofteig stendur „sama og Hofteigur 4“. Í fundargerð 9.1.1947 eru þrjár samhljóða umsóknir í röð, fyrir nr. 7, 13 og 17: að hækka þak og setja kvisti á hús í smíðum, sama gjald.
Berðu húsin saman þegar þú gengur framhjá: liti, glugga, þök, svalir, viðbyggingar og viðhald.
Sama teikningLíklega sama teikning
Tvíburarnir 12 og 16
Gísli Halldórsson teiknaði bæði húsin 1948 (teikningar 212/48 og 213/48). Þau voru metin sama dag, 5. júlí 1951, hvort á 517.700 kr. Í fundargerð 13.8.1948 eru bæði húsin samþykkt hlið við hlið: tvílyft, 115,45 ferm. hvort, sami umsækjandi (byggingarsamvinnufélag).
Berðu húsin saman þegar þú gengur framhjá: liti, glugga, þök, svalir, viðbyggingar og viðhald.
Sama teikningEin teikning fyrir húsin
Parhúsið 30 og 32
Ein aðalteikning, 757/45, eftir Hafliða Jóhannsson nær yfir bæði húsin.
Berðu húsin saman þegar þú gengur framhjá: liti, glugga, þök, svalir, viðbyggingar og viðhald.
Sama teikningEin teikning fyrir húsin
Parhúsið 46 og 48
Bárður Ísleifsson teiknaði „Hús við Laugateig nr. 62 og 64“, síðar 46 og 48, á eina teikningu sem var samþykkt 27. september 1945. Húsin voru metin sama dag, 10. desember 1947, hvort á 190.500 kr.
Berðu húsin saman þegar þú gengur framhjá: liti, glugga, þök, svalir, viðbyggingar og viðhald.
Sama teikningEin teikning fyrir húsin
Laugateigur 54 og 56
Sótt var um bæði húsin á sama fundi, sömu umsækjendur, sama stærð (101,58 ferm., einlyft steinhús). Afgreiðslu var frestað 30.1.1947 og bæði samþykkt 27.2.1947. Þetta eru bakhúsin sem nágrannar mótmæltu vorið 1947.
Berðu húsin saman þegar þú gengur framhjá: liti, glugga, þök, svalir, viðbyggingar og viðhald.